Fermingar tilboð 1 - Kaka, kransa karfa, marengs stafur & marengs bar
Fermingar tilboð 1 - Kaka, kransa karfa, marengs stafur & marengs bar
--- Vinsamlegsat athugið að allra minnsti fyrirvari pantanna á þessari vöru eru 10 sólarhringar með fyrirvara um laus pláss---
Allt sem þú þarft á veislu borðið! Gerðu veisluna ógleymanlega með glæsilegum og bragðgóðum veitingum.
Þessi pakki inniheldur eftirfarandi:
- Tveggja hæða kaka - 20, 25, 30, 35 eða 40 manna
- Skreyttur Marengs stafur - u.þ.b. 25-30 manna
- Kransa karfa fyllt með makkarónum & kransa bitum - 20 eða 30 manna
- Marengs bar
Marengs bar
Marengs topparnir eru frábær viðbót við veisluna þína. Undanfarin ár hefur tíðkast að vera með nammi bar í veislum en nú er hægt að taka nammibarinn á skemmtilegra stig með marengs bar!
Hægt er að velja úrval af bragðtegundum og því fleiri tegundir, því litríkari verður barinn!
Topparnir eru eins og einn munn biti á stærð og við mælum með að reikna með t.d.10 toppum á mann eða allavega 1-2 af hverri sort, en auðvitað verður hver og einn að meta sína veislu.
T.d. væri sniðugt fyrir 300 manna veislu að vera með samtals 300 toppa og kannski 10 bragðtegundir.
Kransa karfa
Klassíska kransakakan í fallegu körfu formi, stút full af góðgæti fyrir alla til að njóta.
Hægt er að fá körfuna hringlaga eða hjartalaga.
Skreyttur marengs stafur
Hvort sem það er bókstafur eða tölustafur, þá er þetta skemmtileg & persónuleg viðbót við veisluna þína, og að sjálfsögðu þurfa allar veislur marengs tertur!
Hvítur marengs skreyttur að ofan með sprautuðum rjóma, makkarónum, marengs toppum og alskonar góðgæti í þeim litum sem óskað er eftir.
Hver stafur inniheldur:
- Tvo marengs botna
- Þeyttan rjóma, sprautaðan í doppur
- Tvær gerðir af fyllingu
- Val um súkkulaði eða karamellu bráð inn í
KAKAN
Tveggja hæða kökurnar okkar eru á tvær kökur ofaná hvor annari með stoðum og platta á milli. Kökubotnarnir eru þunnt skornir á 4-6 dásamlegum lögum með kremi á milli hæða
(fjöldi laga fer eftir stærð sem valin er) og fyllingu inn á milli sé þess óskað.
Kökurnar okkar eru bakaðar með okkar eigin uppskriftum úr hágæða hráefnum og eru flest kremin á listanum gerð með yndislegu, silki mjúku smjörkremi sem inniheldur m.a. íslenskt smjör og bræddan sykur sem kemur út í mjúkri áferð annað en klassíska smjörkremið með flórsykrinum sem íslendingar hafa vanist.
**Ath. ávaxta kremin okkar eru gerð með bragðefnum, sé óskað eftir ekta ávöxtum mælum við með curd eða ferskum ávöxtum í fyllingu ásamt t.d. vanillu kremi**
Innifalið í grunn verðinu getur t.d. verið:
- Sprautaðir krem toppar/rósettur
- Súkkulaði dripp (lekur niður kökuna, hægt að fá litað)
- Áletrun
- 3-4 makkarónur
- Alskonar sprinkles
- Ásetning á blómum eða dóti sem komið er með
- Einfaldar skreytingar
Ath. Ef beðið er um flóknar skreytingar og aukahluti, s.s. karaktera, logo eða þ.h. getur auka kostnaður bæst við.
Auka kostnaður er reiknaður í þrepum og fer eftir tímalengd vinnu við skreytingarnar.
1. þrep - 2.500 kr. 2. þrep - 5.000 kr. 3. þrep 7.500 kr. og svo framvegis.
Sérhannað kökuskilti með nafni er á 2500 kr.
Þú færð sent tilboð til baka með loka verði pantannar til staðfestingar.
Innsend pöntun er ekki staðfesting á að pöntun verði framkvæmd heldur munum við hafa samband í tölvupósti og pöntunin verður formlega staðfest þegar staðfestingargjald berst - 50% af heildarverði pantanar.
Fyrir frekari upplýsingar endilega kíktu á spurt&svarað, ef þú finnur ekki svörin sem þú ert að leita að ekki hika við að hafa samband eða bóka tíma í ráðgjöf.
Vegan - mjólkur- og eggjalaust
Við bjóðum upp á vegan/mjólkur-eggja lausa súkkulaðibotna. Flest kremin er hægt að gera mjólkur og eggjalaus/vegan en stjörnumerkt krem og fyllingar innihalda mjólkurvörur/egg/dýraafurðir og er EKKI hægt að gera vegan.
Sykurmassinn okkar inniheldur gelatín og er því ekki vegan.
Ef um ofnæmi er að ræða þarf alltaf að taka það fram svo við vitum það fyrir víst.